17janúar

Skólinn byrjaður...shit

sælir landsmenn...
þvílík tíma eyðasla sem þessi blogg  eru, og ef maður byrjar þá er allir að reka á eftir manni!
það vita allir sem þekkja mig að ég er ógeðslega latur...

En heimska þessa árs hjá mér var allavega sett þegar ég ætlaði að heilsa vini mínum honum
dúna en lenti í þeim leiðindum að banka aftan í hankan á einhverjum gaur sem ég þekki ekki
neitt og þykir örugglega ekkert gott að láta banka í hausin sinn
En ég fór bara með mesta kjánabros sem maður hefur verið með:)

SHIT! hvað er ég að hlusta á? arnar hvað ertu að láta mig fá? þótt maðurinn sé kóngur þá
er þetta ekki spes hlustun. Kannski datt sumum í hug rétt en þetta er einmitt 50 cent.
ok skipt um lag!

Wanna get to now you....shit
hann er samt að fara leika í enn aðrari BIOmynd, sem ég mæli með!

Rassa pot og stebbi tape er blanda sem þú vonandi heldur þér frá
(fer eins og bjór og exstra tyggjó)
en þannig var að ég var staddur í miklu sakleysi að gera bakæfingar að hlusta á ekkað í spilaranum mínum 
í öðrum heimi en þá finn ég fyrir ljúfum en köldum höndum að pota í minn fagra rass, hann (stebbi) var að dæma
mig fyrir einhvern gaur sem hann var að þjálfa. og ég þorði ekki að vera með dólg við gamla mannin og þagði
og leið ekkert smá kjánalega. Hefði átt að taka Gussa bigg á þetta og drulla yfir hann, ef ekki allir vita þá er honum
gussa mein illa við eldra fólk! eða gunni var þetta bara þegar gamli kallinn kýldi þig í sjallanum? ég spyr!:D

skólinn er ekkert grín að þessu sinni því ég er í alltof mörgum tímum og ekki það skemmtilegum.
það nýjasta nýtt er rekstrarhagfræði sem er ekki ósvipuð kirkju, semsagt helvíti leiðinlegt fag,
maður er samt gott sem búinn að ná þeim áfanga því samkvæmt kennaranum mínum sem er kvk
sat ég hliðina hjá henni í einhverju brúðkaupi og hún leit á mig sem sinn besta vin, sem er fínt

Krakkar áður en þið sofnið yfir þessu þá langar mig um að þið biðjið til mín og reynið að veita mér
lukku fyrir dönsuna mín. ég er núna í dönsku 102 í 3-skipti!
JESUS
því er ég ekki að nenna...

en þakka fyrir lesturinn, þar að segja ef þið komust svona langt....
eitt að lokum: Arney, þorðu að viðurkenna! ég er hetjan þín!

en ég kveð um sinn og skoðið http://www.wulffmorgenthaler.com/ bara snild

Steinþór Andri Steinþórsson
17. janúar 2007 klukkan 02:59
Steinþór Andri Steinþórsson
5 athugasemdir
01janúar

Uppgjör...

Árni björn er að setja saman lista hvað stóð uppúr, ég held að ég verði aðeins að gera ekkað svoleiðis!
uppgjör ársins er frekar jákvætt, en hefur samt sýnar neikvæðu hliðar.

OK. á þessu ári sem er enn, ákvað ég að byrja það með trompi og drekka mig í hel og æla öllu sem ég gat, heima hjá mér með fullt hús af fólki... not sóóó good:P svo auðvitað grét hjá hörpu eftir öll gubbin:P... en núna er að koma nýtt ár og það gleymist, vonandi.

Handboltinn hefur gengið nokkuð vel, vann mestu framfarir sem var alltaf takmarkið og það var mjög gaman,
en annars náðum við ekki neinum alvöru árangri, 3 sæti í deild og 4 á íslandsmeistaramóti. þar vorum við skelfilegir
og mér hefur aldrei liðið jafn illa eftir einn leik og eftir selfoss, við vorum 6 mörkum yfir þegar 10 mín voru eftir.
klúður.

Tónleikar ársins voru Sigur rós tónleikarnir í ásbyrgi, þar fór ég með bestu vinum mínum, þeim Hörpu og Árna B.
þetta var mesta upplifun sem ég hef kynnst. Ég hafði Aldrei mikin áhuga á sigur rós fyrir en á þessum tónleikum,
núna í dag hlusta ég á þá þegar ég ligg í leti, og þeir sem þekkja mig vita að það er þá mikill tíma.;)

Helgin Fyrir Versló var sú sem ég hefði ALDREI búist við. Ég hef Aldrei eignast jafn marga vini á einu bretti og þegar
ég kom í litla smá bæinn, vopnafjörð. ég kom til að hitta vin minn hann símon, sem er orðin einn að mínum bestu vinum. Vopnafjörður er annað orð yfir eina stóra/litla Fjölskyldu og mér var boð í hana leið og ég kom þangað.
Enda mun ég koma næstu ár, Það er Alveg bókað.

Mitt lið, KA og erkifjendur mínir þórsarararar ákváðu að hefja samstarf, það hefur komið mér verulega á óvart. mjög fínir þessir þórsarar, já ég sagði það. En við erum með gott lið og stefnum hátt.

Skólinn hefur verið frábær, ég hef náð öllu NEMA dönskunni. núna í des féll ég með fjóra,í annað skipti. fyrra skiptið féll ég me einn, glöggir menn sjá það að það er 400% bæting:) alltaf hægt að hugsa svona:)
Fag ársins var Blak, ÞAÐ var snild. alltaf gaman að spila blak í góðum hópi. þessi hópur var alveg frábær.

já þá er þetta að enda, ég hef upplifað margt.

svona í lokinn...

Matur ársins: Subway... er samt að fara fá leið á því
Drykkur ársins: Jagermaster í magic
Diskur ársins: Jeff Who? - death before disco... ekki bara útaf barfly heldur öllum disknum.
skóli ársins: VMA
Egó ársins: Arnar S

Maður ársins: Aigars Lazdins
Kona ársins: Mamma Ólafsfirðingur

Ég vill þakka öllum fyrir gott ár og vona að næsta verði jafn gott

Kær kveðja Seinþór Andri
01. janúar 2007 klukkan 03:36
Steinþór Andri Steinþórsson
12 athugasemdir
27desember

Að byrja! taka 2!

jájájájájájá ég er ekki visss, ég  ætla reyna gera þetta blogg dæmi aftur, kannski ekki of góð hugmynd, ég veit ekki. já ég bíð hérna eftir að strákarnir fari að koma til að við getum farið að hella í okkur fyrir ball kvöldsins,
Í svörtum fötum mundu halda sína seinustu tónleika í sjallanum( held ég)
í lok kvöldsins veit ég ekki en mig grunar að það verði mikil gleði að þeir séu að hætta, hver veit? ekki ég!

Coldplay er að fara koma á svið á Sirkús og ég ætla fara drekka öl yfir þeim dýrðum!
ætla ekki að hafa þetta lengra þetta lengra enda eru þið örugglega að deyja yfir þessu, hver veit? ekki ég!
kv Steini

p.s. Gleðileg jól landsmenn
27. desember 2006 klukkan 02:47
Steinþór Andri Steinþórsson
2 athugasemdir
03júní

Að byrja!

Já! nú er ég að gera það sem ég hélt að ég mundi aldrei gera. voða lítið að gera þetta föstudags kvöld sem er mjög léglegt að minnhálfu! og er þetta svarið? ég er bara að gá hvort maður vekur kæti annars hættir maður EN eins og gamall kall sagði: maður verður að prufa allt.

OG svona áður en ég hætti þá ætla ég að benda á það að mín stafsetning er bara mín leið til að tjá mig, eins og góðkunningi minn Halldór Laxness sem er einmitt afi dóra DNA.

EN þá ætla ég að kveðja þetta blogg í bili
Steini kveður
03. júní 2006 klukkan 05:04
Steinþór Andri Steinþórsson
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leikur dagsins